
Tjáðu þig
Hver og einn bíll vegsamar ást okkar á einstökum smáatriðum, allt frá úrvalsleðursætum til sportlegra aksturseiginleika.
Momentum eða summum útfærsla
Fyrsta flokks sænsk listasmíð
Í boði eru tvær útfærslur; annars vegar Momentum og hins vegar Summum.
Momentum búnaður:
Borgaröryggi (City Safety), ABS hemlakerfi, sex loftpúðar með loftpúðatjöldum í hliðargluggum, tölvustýrð loftkæling með hitastýringu (ECC) og AQS lofthreinsikerfi, spólvörn m/stöðugleikastýringu (DSTC), leðurinnrétting, Xenon gasljós með beygjustýringu og þvottakerfi á aðalljósum, Bluetooth GSM símkerfi, vélarhitari, krómlistar kringum glugga, SIPS hliðarárekstrarvörn, WHIPS bakhnykksvörn á framsætum, þjófavarnarkerfi með hreyfiskynjara og hæðarskynjara, glasahaldari í armpúða afturí, ljós í hliðarspeglum, heimreiðarljós, nálgunarljós, TPMS loftþrýstiskynjarar í hjólbörðum, hraðastillir, aksturstölva, 5” litaskjár í mælaborði með aðgerðastýringum, Volvo "High Performance" hljómtæki (4x40w og 8 hátalarar), USB tengi fyrir iPod og MP3 spilara, fjarstýring fyrir hljómtæki í stýri, upphitanleg framsæti, "Milled" áláferð á miðjustokk, leðurstýri og -gírstöng, upphitanlegir, rafdrifnir og raf-fellanlegir útispeglar með ljósi, regnskynjari á framrúðu, festingar fyrir farangur í skotti, 17” Rex álfelgur, gúmmímottur og viðgerðarsett með loftdælu í stað varadekks.
Summum búnaður umfram Momentum:
17" Pandora álfelgur, rafdrifið ökumannssæti með minni, lyklalaust aðgengi og start, upplýsingar í lykli um stöðu bílsins (opnun/lokun/innbrot) og dimming á baksýnisspegli.
hafðu samband
Líst þér vel á þennan?
Hafðu samband við okkur og fáðu tilboð eða svör við spurningum sem leita á þig. Ef þú vilt setja bíl upp í þá er gagnlegt að senda okkur bílnúmer væntanlegs uppítökubíls. Við tökum allar gerðir bíla upp í. Mismuninn getur þú greitt eða við útvegum hagstæða fjármögnun. Skráðu þig líka á póstlista og fáðu fréttirnar fyrst/ur.
nýsköpun okkar
Fólk er leiðarljósið í öllu okkar starfi og því miðast nýsköpun okkar við að einfalda og bæta líf þitt. Við erum sérstaklega stolt af árangri okkar við þróun á vistmildari vélum, samskiptatækni og öryggi. Við eigum hugtök yfir hugsun okkar á þessum sviðum: Drive-E, Sensus og IntelliSafe.