
XC60 Mild hybrid ekki lengur í boði á Íslandi. Kynntu þér úrvalið sem er í boði.
Snjall XC60. Snjöll hönnun hvert sem litið er. Kynntu þér þennan hugvitssamlega millistærðarjeppa með innbyggðri Google þjónustu.



Taktu þetta aðeins lengra. Beislaðu orkuna til að gera aksturinn enn mýkri í mild hybrid bílunum okkar.
Samhliða hybrid-kerfi endurheimtir orkuna sem myndast við hemlun og geymir það í 48 V rafhlöðu. Þegar sú orka er notuð minnkar bæði eldsneytisnotkun og útblástur úr púströri.
XC60 mild hybrid er hannaður til að tryggja mjúka gangsetningu og hröðun og gera aksturinn snurðulausari, hvort sem er innanbæjar eða á vegum úti.
Hver einasti dropi af eldsneyti sem sparast hjálpar – og í mild hybrid bílunum okkar nýtur þú ávinningsins af minni eldsneytisnotkun, án minnkaðra afkasta.
Smáatriðin skipta máli.Innanrýmið er hannað með skynræna upplifun í huga, til að örva jafnt hug sem hjarta.
Meira af því sem þú vilt helst. Njóttu til fullnustu snjallbúnaðar og stoðtækni.
Hvað viltu vita um XC60?
Hvaða forrit og þjónusta frá Google fylgja með XC60?
XC60 fylgir Google Map, Google Assistant og Google Play.
Eru gögnin sem þarf til að nota stafræna þjónustupakkann innifalin?
Já. Ótakmarkað gagnamagn er innifalið fyrstu fjögur árin. Þetta á við um leiðsögn og raddaðstoð, sem og niðurhal og notkun á öðrum forritum (t.d. tónlistarstreymi). Eftir þann tíma er hægt að framlengja þjónustuna með áskrift.
Er stafræn þjónusta í áskrift?
Já, fjögurra ára aðgangur að þjónustunni er innifalinn. Að þeim tíma liðnum er hægt að framlengja áskriftina ef þú vilt halda áfram að nota þjónustuna.
Hvenær hefst áskriftin að stafrænu þjónustunni og hvað gildir hún lengi?
Áskriftin gildir í fjögur ár. Ef um nýjan bíl er að ræða miðast áskriftartímabilið við dagsetningu afhendingar frá söluaðila. Áskriftin er tengd bílnum og ef hann er seldur færist hún yfir á næsta eiganda/notanda.
Skoða aðrar gerðir
Frekari upplýsingar um XC60
Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslum eða aflrásum.
Google, Google Play og Google-kort eru vörumerki Google LLC.