EX30. Mikil rafknúin afköst í litlum umbúðum.

Drægni á rafmagni

(Allt að)

Tölurnar eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars gerði fyrir EX30 og því er ekki hægt að ábyrgjast þær. Drægni og eldsneytisnotkun við raunaðstæður fara eftir aksturslagi og öðrum ytri áhrifaþáttum. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.

Áætlaður hraðhleðslutími með jafnstraumi

(10–80%)

Dæmigerður hleðslutími úr 10 í 80 prósent með 175 kW hraðhleðslu með jafnstraumi (CCS2).

Tölurnar eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars gerði fyrir EX30 og því ekki hægt að ábyrgjast þær. Hleðslutími getur verið mismunandi eftir aðstæðum og ræðst af þáttum eins og hitastigi utandyra, hitastigi rafhlöðunnar, hleðslubúnaði, ástandi rafhlöðunnar og ástandi bílsins. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.

kWh

Orkunotkun

(á hverja 100 km)

Tölurnar eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars gerði fyrir EX30 og því er ekki hægt að ábyrgjast þær. Drægni og eldsneytisnotkun við raunaðstæður fara eftir aksturslagi og öðrum ytri áhrifaþáttum. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.

Hröðun

(0–100 km/klst.)

Straumlínulagaðar felgur og áberandi fram- og afturljós gefa minnsta jeppanum okkar stóran persónuleika.

Hliðarmynd af EX30.

Glæsilegur og nútímalegur, EX30 er hápunktur skandinavískrar jeppahönnunar.

Víðmynd af framhluta Volvo EX30 sem er lagt hjá stórri steinsteyptri byggingu við vatn.

Innblásið af skandinavískum hönnunargildum sem byggjast á heiðarleika og ráðvendni.

Víðmynd af vinstri hlið Volvo EX30 sem er lagt hjá stórri steinsteyptri byggingu.

Ný straumlínulöguð felguhönnun.

Horft aftan á EX30.

Hægt er að láta afturljós og aðalljós keyra lýsingarmynstur þegar komið er að bílnum eða gengið frá honum.

Útsýni yfir Volvo EX30.

Stór þakgluggi skapar afslappað andrúmsloft.

Útsýni yfir EX30.

Stóri þakglugginn skapar meiri tilfinningu fyrir birtu og lofti inni í EX30.

Umgjarðarlaus hliðarspegillinn farþegamegin á Volvo EX30 glitrar í björtu sólskini.

Fyrirferðarlitlir hliðarspeglar án umgjarðar skapa nútímlegt útlit.

Horft yfir ökumannssætið, ferkantað stýrið og miðjuskjáinn.

Innblásið af fágun vel skipulagðs skandinavísks heimilis.

Smærri rafmagnsjeppi að gera stóra Volvo-hluti.

Víðmynd af afturhluta Volvo EX30.
Hliðar- og baksýn af EX30.

EX30 er hannaður til að hafa minnsta kolefnisfótspor allra Volvo-bíla til þessa.

Horft ofan EX30 hleðslutengi.

Áætlaður DC hraðhleðslutími EX30 (10-80%) er aðeins 26 mínútur.

Víðmynd af Volvo EX30 sem er lagt hjá steinsteyptri byggingu með bjartan himin í bakgrunni.

Afgerandi samlit hlíf kemur í stað grillsins.

Horft ofan á hluta framhluta Volvo EX30

Nútímalegt tvítóna útlit með Onyx Black-þaki.

Horft aftan á EX30.

Rafdrifinn afturhlerinn einfaldar hleðslu og tryggir öruggara aðgengi.

Hljóðstöng

Stílhrein hljóðstöngin er miðpunktur aflmikils hljóðkerfisins.

Park Pilot Assist

EX30 býður upp á sjálfvirka lagningu í stæði, stýri, inngjöf og hemlun.

Lýsingarþemu

Fimm lýsingar- og hljóðþemu skapa skandinavíska stemningu.

Snjallar geymslulausnir

Hagnýtar geymslulausnir og sveigjanlegt farangursrými auka hægindi og þægindi.

Innra rými

Endurunnið. Endurnýjað. Fágað.

Við hönnuðum fjögur innanrými fyrir EX30 sem öll sækja innblástur í náttúruna. Í þeim fara saman fallegir litir á áklæði og klæðningum og endurnýjanleg og endurunnin efni.

Fimm sæta farþegarými Volvo EX30 í hönnunarþema innanrýmis sem heitir Breeze.

Breeze

Endurnærandi svalinn sem við þráum á sólríkum dögum. Einstök mynstur í mjúkum litum.

Áklæði með pixlamynstri og Nordico

Áklæði

Particle-

Klæðning

Sumardagar

Hönnunarinnblástur

Blá

Klæðning á loftunaropi

Akstursupplifun

Einföld og aðgengileg.

Einfaldari og sérstillanlegri akstursstjórntæki og skjáir gera aksturinn auðveldari og aðgengilegri.

Nærmynd af 12,3 tommu háskerpumiðjuskjá EX30.
Nýjungar

Framþróun er staðalbúnaður.

Njóttu akstursaðstoðartækni og öryggisnýjunga sem hannaðar eru til að tryggja öryggi þitt og annarra vegfarenda.

Viðvörun fyrir hurðaopnun

Við útbjuggum EX30 með fyrsta flokks öryggisbúnaði sem dregur úr hættunni á að ökumaður og farþegar opni bílhurðina í veg fyrir hjólreiðafólk sem kemur aftan að bílnum.

Efni

Úrgangi breytt í klæðningu.

EX30 var hannaður með það að sjónarmiði að hafa minnsta kolefnisfótspor allra Volvo-bíla frá upphafi og er því að miklu leyti gerður úr endurnýjanlegum og endurunnum efnum.*

Ábyrg hönnun

Lágstemmd hönnun og skilvirk notkun efna gerði okkur kleift að draga úr eða koma í veg fyrir sóun.

Efni í ytra byrði

Um 25 prósent alls áls og 17 prósent alls stáls og plasts sem notað er í EX30 eru endurunnin.

Efni í innra rými

Um 30 prósent klæðningar er úr endurunnu plasti, auk þess sem endurunnin og endurnýjanleg efni eru notuð í yfirborðsfleti.

Nærmynd af endurunnu efni sem notað er í Volvo EX30.
Ábyrg hönnun

Lágstemmd hönnun og skilvirk notkun efna gerði okkur kleift að draga úr eða koma í veg fyrir sóun.

Efni í ytra byrði

Um 25 prósent alls áls og 17 prósent alls stáls og plasts sem notað er í EX30 eru endurunnin.

Efni í innra rými

Um 30 prósent klæðningar er úr endurunnu plasti, auk þess sem endurunnin og endurnýjanleg efni eru notuð í yfirborðsfleti.

*Byggt á kolefnisfótspori út endingartíma bíls sem er ekið meira en 200.000 km á EU27-rafmagni og í tengslum við vörur á heimsmarkaði.

Tæknilýsing

Ítarleg tæknilýsing og upplýsingar um gerð.

Horft ofan á Cloud Blue-bláan Volvo EX30.

Tæknilýsing

Ítarleg tæknilýsing og upplýsingar um gerð.

Sæti

5

Tölurnar eru til bráðabirgða og fengnar úr mati og útreikningum sem Volvo Cars gerði fyrir EX30 og því er ekki hægt að ábyrgjast þær. Raunorkunotkun við raunverulegar aðstæður er mismunandi og fer eftir aksturslagi og öðrum ytri áhrifaþáttum. Endanleg vottun ökutækis bíður staðfestingar.

Hvað viltu vita um Volvo EX30?

Get ég pantað Volvo EX30 á netinu?

Á sumum markaðssvæðum er hægt að panta bíla til kaupa og í áskrift á netinu. Athugaðu að verð eru leiðbeinandi og gætu breyst fyrir afhendingu á bílnum vegna þátta sem við höfum ekki stjórn á, svo sem hækkana á sköttum, gjöldum, vöxtum o.s.frv. Þér verður gert viðvart um allar breytingar og getur alltaf hætt við fyrir afhendingu.

Er Volvo EX30 aðeins í boði sem rafbíll?

Já.

Hversu langt get ég ekið áður en ég þarf að hlaða rafhlöðuna í Volvo EX30-rafbílnum?

Áætluð drægni á rafmagni Volvo EX30 er allt að 480 km. Drægni ræðst af ýmsum þáttum, á borð við aksturslag, hitastig úti við, veður, vind, landslag og vegaskilyrði. Aðrir þættir sem hafa áhrif á drægni eru m.a. hversu mikið rafmagn þú notar í búnað í bílnum eins og miðstöð eða loftkælingu. Þú getur aukið drægnina með því að forhita eða forkæla rafhlöðuna við hleðslu til að hún sé við kjörhitastig þegar þú ekur af stað.

Hvað kostar að hlaða rafhlöðu Volvo EX30?

Verð á rafmagni er breytilegt, en kostnaðurinn við að hlaða bíl er þó minni en kostnaðurinn við að fylla á bensín- eða dísilknúinn bíl. Lægri rekstrarkostnaður er ein ástæða þess að fólk er að skipta yfir í rafbíla.

Hvar get ég hlaðið Volvo EX30?

Hraðhleðsla er í boði á DC hleðslustöðvum (með jafnstraumi). Þú getur fundið hleðslustöðvar við þá leið sem þú hefur valið með Google-kortum á miðjuskjánum eða í Volvo EX30 appinu. Þú getur einnig hlaðið heima við með Volvo Cars-heimahleðslustöðinni.

Hvað tekur langan tíma að hlaða Volvo EX30?

Hraðasti hleðslutíminn næst með hleðslu í 80% af möguleika rafhlöðunnar. Þetta tryggir styttri hleðslutíma vegna þess að síðustu 20 prósent hleðslunnar taka lengsta tímann. Forhitun eða forkæling rafhlöðunnar áður en ekið er inn á hleðslustöð stuðlar enn fremur að hraðari og skilvirkari hleðslu.

Með þessari aðferð geturðu hlaðið úr 10 í 80 prósent hleðslu á 175 kW DC hraðhleðslustöð (með jafnstraumi) á allt niður í 26,5 mínútur.

Ef þú þarft fulla hleðslu til að ná á áfangastað eða næstu hleðslustöð skaltu nota stjórntækin á miðjuskjánum til að velja 100 prósent hleðslu.

Hleðslutími getur verið mismunandi og ræðst af þáttum eins og hitastigi úti við, hitastigi rafhlöðunnar, hleðslubúnaði, ástandi rafhlöðunnar og ástandi bílsins.

Er Volvo EX30 öruggur bíll?

EX30 er kannski smærri en hinir en öryggið er það sama og við má búast í Volvo jeppa. Við þróun og hönnun bílsins studdumst við við leiðandi staðla okkar fyrir öryggisbúnað, auk þess að bæta nýjum búnaði við. Frekar upplýsingar um öryggisorðspor okkar.

Er Volvo EX30 með Apple CarPlay?

Já.

Er Volvo EX30 með Google innbyggt?

Já.*

*Þjónusta Google er virkjuð með stafræna pakkanum, sem er innifalinn til minnst fjögurra ára - mismunandi eftir markaðssvæðum. Að þessum tíma loknum gilda nýir skilmálar og gjöld ef þú kýst að endurnýja.

Hvað er SUV-bíll?

SUV er skammstöfun enska hugtaksins „sports utility vehicle“ sem er einnig þýtt sem jeppi á íslensku. Slíkir bílar eru fjölhæfir fimm til sjö sæta fólksbílar með háreistri hönnun á ytra byrði. Sætisstaða í slíkum bílum er hærri en í hefðbundnum fjölskyldubílum og þeir eru allajafna með aldrifi. Þessir bílar eru framleiddir í ýmsum stærðum, þar á meðal litlir.

Stærð Volvo EX30 setur hann í flokk minni SUV-bíla eða öðru nafni sportjeppa. Hann er fjölhæfur og háreistur, rúmar allt að fimm einstaklinga og er búinn rúmgóðum farangursrýmum.

Framtíðartækni, búnaður sem sýndur er og lýst er, endanleg hönnun og akstursgeta kunna að vera mismunandi. Búnaður er hugsanlega ekki í boði á öllum markaðssvæðum og verður ekki staðalbúnaður á öllum markaðssvæðum né með öllum gerðum.

Google, Google Play og Google-kort eru vörumerki Google LLC.