Vottaðar drægnitölur eru oft það fyrsta sem fólk sér þegar það skoðar rafbíl. Þær birtast í fyrirsögnum og samsetingarkerfum á vefnum sem og öðru kynningarefni og byggja á stöðluðum prófunaraðferðum, eins og WLTP (flest svæði), CLTC (Kína) og EPA sviðið (Bandaríkin og Kanada).
En eins og margir ökumenn rafbíla vita er drægni ekki bara tala. Það fer eftir því hvernig og hvar þú ekur.
Hitastig, hraði, ástand vega og jafnvel veðurfar hafa áhrif á hversu langt rafbíll kemst. Áskorunin er að hjálpa ökumönnum að skilja hvað það þýðir í reynd, án þess að flækja hlutina um of.
Drægnireiknirinn er aðgengilegur á vefsíðum Volvo Cars og hjálpar þér að átta þig á því hvernig vottuð drægni getur litið út við raunverulegar akstursaðstæður. Með því að breyta þáttum á borð við útihita, akstursmynstur og notkun loftslagsstýringa sérðu hvernig drægnin getur breyst eftir aðstæðum.
„Vottaða drægnitalan er áreiðanleg og afar mikilvæg,“ segir Roy Ogink, tæknilegur verkefnisstjóri teymisins á bak við drægnireikninn. „Við bætum við því samhengi sem þarf svo væntingar viðskiptavina endurspegli betur raunveruleikann við mismunandi akstursaðstæður – strax frá upphafi.“
Vottuð drægni og raunveruleg drægni
Vottuð drægni er mæld við stöðluð og stýrð prófunarskilyrði. Bílnum er ekið samkvæmt fyrirfram skilgreindri aksturslotu í rannsóknarstofu, með slökkt á loftslagsstýringu, engum vindi og hagstæðu hitastigi. Tilgangurinn er að skapa samræmdan viðmiðunarpunkt sem gerir sanngjarnan samanburð mögulegan. Sömu stöðluðu prófunarskilyrði gilda fyrir alla bílaframleiðendur.
Raunverulegur akstur getur auðvitað litið öðruvísi út.
"Það gæti verið vetur," segir Roy. "Þú gætir keyrt hraðar, flutt farþega eða notað miðstöðina meira. Allt þetta hefur áhrif á orkunotkun, því eðlisfræði er eðlisfræði. Það er ekkert öðruvísi en að skilvirkni og drægni bensínbíls verði fyrir áhrifum af akstursskilyrðum."
Í stað þess að láta ökumenn sjá þennan mun sjálfir þróuðum við drægnireikni til að bjóða upp á skýrari nálgun byggða á gögnum. Stilltu hitastig, samsetningu vega og loftslag og þú getur séð hvernig áætluð drægni breytist.
"Markmiðið er að hjálpa fólki að átta sig betur á þeim þáttum sem hafa áhrif á drægni rafbíls, í stað þess að einblína eingöngu á eina tölu. Þannig geta ökumenn tekið upplýstari ákvarðanir og ekið af meira öryggi," segir Roy.


