Helsti búnaður
Kynntu þér hvernig tengigeta, þægindi og öryggisbúnaður gera V90 Cross Country einstakan í sinni röð.
Innbyggt Google
Það er innifalið ótakmarkað gagnamagn og er stafræni þjónustupakkinn okkar þægileg leið til að samræma líf þitt, lífið með V90 Cross Country og stafræna lífið.
Þú færð uppáhaldsforritin þín, eins og Google Assistant, Google Map og fleira á Google Play, beint í bílinn til að tryggja þér góða, einstaklingsmiðaða og óaðfinnanlega akstursupplifun.
Fínstilltu þægindin og fáðu meira út úr Volvo-bílnum þínum. Stafræni þjónustupakkinn okkar býður m.a. upp á fjarþjónustu í gegnum Volvo Cars appið.
Stafrænn þjónustupakki
Fjögurra ára áskrift að stafræna pakkanum fylgir V90 Cross Country. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.
Þægindi og tækni
Hannað fyrir þá sem leitast eftir framúrskarandi hljómgæðum. Þetta 1,400 W hágæðahljóðkerfi er í boði sem aukabúnaður og gerir tónlistina tærari og raunverulegri, fínstillir smáatriði og upplausn og gerir þér kleift að heyra lagið alveg eins og listamaðurinn vildi að það hljómaði.
19 hátalarar og nýstárlegur bassahátalari sem eru lagaðir nákvæmlega að byggingu farþegarýmisins í Volvo skila glæsilegum surround-hljómi, sama hvar þú situr. Heildstæð tónlistarupplifun sem þú nýtur í botn.
Einstök „Room Transformation“-tækni endurskapar hljóðvist tiltekins herbergis. Þú velur milli fjögurra mismunandi stillinga, „Studio“, „Individual Stage“, „Concert Hall“ og „Jazz Club“.
Bowers & Wilkins-hljóðkerfi

Öryggisaðstoð []
* Akstursaðstoðarkerfi koma ekki í stað athygli og dómgreindar ökumanns. Stýrisaðstoð er virk þegar ökutækið er á milli 60 og 140 km/klst.
** Ökutæki, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk sem stefnir í sömu átt og bíllinn greinast á vissum hraða og við vissar aðstæður. Skynjarakerfi krefjast þess að hlutir séu upplýstir og að fram- og afturljós bílsins séu kveikt eftir að dimma tekur. Ökumaðurinn einn ber ábyrgð á öryggi við akstur öllum stundum.
*** Stuðningsaðgerðir koma ekki í staðinn fyrir athygli og dómgreind ökumanns. Virkni umferðarskynjara kann að vera takmörkuð við vissar aðstæður. Hemlaaðstoð er aðeins virk á hægum hraða.
Frekari upplýsingar um V90 Cross Country
Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.
Google, Google Play og Google Maperu vörumerki Google LLC.