Helsti búnaður

Kynntu þér hvernig tengigeta, þægindi og öryggisbúnaður gera V90 Cross Country einstakan í sinni röð.

Innbyggt Google

Besta leiðsögn í flokki sambærilegra bíla

Google Maps er innbyggt í V90 Cross Country og þú færð rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gera þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.

Google hjálpari

Notaðu handfrjálsa stjórnun til að spjalla við Google í V90 Cross Country. Þú getur fengið leiðarlýsingu, notið afþreyingar og verið í sambandi við vini, fjölskyldu og vinnufélaga – þú segir einfaldlega „Ok Google“ til að hefjast handa.

Google Play

Vertu í tengslum við þitt stafræna líf. Með Google Play í V90 Cross Country getur þú notið forrita og þjónustu sem gera hverja ferð skemmtilegri og þægilegri.

Besta leiðsögn í flokki sambærilegra bíla

Google Maps er innbyggt í V90 Cross Country og þú færð rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gera þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.

Öll gögn innifalin

Það er innifalið ótakmarkað gagnamagn og er stafræni þjónustupakkinn okkar þægileg leið til að samræma líf þitt, lífið með V90 Cross Country og stafræna lífið.

Innbyggt Google

Þú færð uppáhaldsforritin þín, eins og Google Assistant, Google Map og fleira á Google Play, beint í bílinn til að tryggja þér góða, einstaklingsmiðaða og óaðfinnanlega akstursupplifun.

Volvo Cars appið

Fínstilltu þægindin og fáðu meira út úr Volvo-bílnum þínum. Stafræni þjónustupakkinn okkar býður m.a. upp á fjarþjónustu í gegnum Volvo Cars appið.

Stafrænn þjónustupakki

Fjögurra ára áskrift að stafræna pakkanum fylgir V90 Cross Country. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.

Fjögurra ára áskrift að stafræna pakkanum fylgir V90 Cross Country. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.

Þægindi og tækni

Innanrými Volvo, sjónlínuskjár varpar upplýsingum um aksturshraða og leiðsögn á framrúðuna.Haltu einbeitingu

Sjónlínuskjár gerir þér kleift að fylgjast með hraðanum, fara eftir nákvæmri leiðsögn, svara símtölum og fleira. Allt þetta án þess að líta af veginum. Birtustig sjónlínuskjásins lagar sig sjálfkrafa að birtuskilyrðum og þú getur stillt kerfið að þínum eigin óskum.

Volvo V90 Cross Country með aukabúnaði fyrir lífsstílinn þinn.Ævintýralegur aukabúnaður

Hjól, kajak, skíðabúnaður - við eigum aukahlutina sem tryggja að búnaðurinn þinn sé öruggur og haldist á sínum stað.

Háþróaða loftræstikerfið í Volvo V90 Cross Country hjálpar þér og farþegum þínum að njóta meiri og heilbrigðari loftgæða.Hreinna loft í farþegarýminu

Háþróað lofthreinsitækið í glænýja loftgæðakerfinu okkar síar burt allt að 95% allra skaðlegra agna sem berast inn í farþegarýmið. Þú og farþegar þínir getið notið betri og heilsusamlegri loftgæða, óháð skilyrðum utandyra. Jafnvel er hægt að vakta svifryks- og frjókornastöðuna fyrir utan bílinn.

Hjálparhönd

Háþróuð akstursöryggistækni hjálpar til við að halda öruggri fjarlægð frá öðrum bílum með því að stilla aksturshraðann, halda bílnum á miðri akrein, gefa merki um að taka aftur af stað og jafnvel stöðva bílinn ef ökumaður verður óökufær.

Innanrými Volvo, sjónlínuskjár varpar upplýsingum um aksturshraða og leiðsögn á framrúðuna.
Volvo V90 Cross Country með aukabúnaði fyrir lífsstílinn þinn.
Háþróaða loftræstikerfið í Volvo V90 Cross Country hjálpar þér og farþegum þínum að njóta meiri og heilbrigðari loftgæða.
Haltu einbeitingu

Sjónlínuskjár gerir þér kleift að fylgjast með hraðanum, fara eftir nákvæmri leiðsögn, svara símtölum og fleira. Allt þetta án þess að líta af veginum. Birtustig sjónlínuskjásins lagar sig sjálfkrafa að birtuskilyrðum og þú getur stillt kerfið að þínum eigin óskum.

Spennandi hljómgæði

Hannað fyrir þá sem leitast eftir framúrskarandi hljómgæðum. Þetta 1,400 W hágæðahljóðkerfi er í boði sem aukabúnaður og gerir tónlistina tærari og raunverulegri, fínstillir smáatriði og upplausn og gerir þér kleift að heyra lagið alveg eins og listamaðurinn vildi að það hljómaði.

Glæddu tónlistina þína lífi

19 hátalarar og nýstárlegur bassahátalari sem eru lagaðir nákvæmlega að byggingu farþegarýmisins í Volvo skila glæsilegum surround-hljómi, sama hvar þú situr. Heildstæð tónlistarupplifun sem þú nýtur í botn.

Veldu þína stillingu

Einstök „Room Transformation“-tækni endurskapar hljóðvist tiltekins herbergis. Þú velur milli fjögurra mismunandi stillinga, „Studio“, „Individual Stage“, „Concert Hall“ og „Jazz Club“.

Bowers & Wilkins-hljóðkerfi

Hátalarar frá Bowers & Wilkins í Volvo V90 Cross Country.

Öryggisaðstoð

Minna álag í mikilli umferð

BLIS-kerfið okkar fyrir blindsvæði aðstoðar þegar skipt er á milli akreina. Ef hætta er á árekstri við önnur ökutæki á aðliggjandi akrein getur BLIS-kerfið gripið mjúklega í stýrið og aðstoðað þig við að halda bílnum og farþegunum öruggum á sínum stað.

Greinir og leiðréttir skrið

Ef bílinn byrjar að reka yfir miðlínuna skapast hætta á árekstri við bíl sem kemur á móti. Bíllinn getur greint þetta og leiðrétt og komið þér aftur á réttan kjöl á veginum.*

Komið í veg fyrir árekstra

Hugvitssamleg öryggisaðstoð gerir þér kleift að greina og forðast ákeyrslu á önnur ökutæki, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og stór dýr. Þessu er náð með því að vara fyrst ökumanninn við og beita því næst hemlum ef ökumaðurinn bregst ekki við.**

360° yfirsýn yfir bílastæði

360° yfirsýn fjögurra myndavéla og hliðarskynjarar þessa kerfis auka yfirsýn yfir hluti til hliðar við bílinn og auðvelda þér að leggja bílnum, óháð því hversu þröngt stæðið er.

Bakkað af öryggi

Umferðarskynjari með sjálfvirkri hemlun aðstoðar ökumanninn þegar bakkað er við takmarkað útsýni. Kerfið getur greint ökutæki sem nálgast bílinn frá hliðum og beitt sjálfvirkri hemlun ef með þarf.***

Aðstoð þvert á aðkomandi umferð

Öryggisaðstoðartæknin okkar getur aðstoðað þegar beygja þarf þvert á aðkomandi umferð með sjálfvirkri hemlun ef hætta er á árekstri.

Minna álag í mikilli umferð

BLIS-kerfið okkar fyrir blindsvæði aðstoðar þegar skipt er á milli akreina. Ef hætta er á árekstri við önnur ökutæki á aðliggjandi akrein getur BLIS-kerfið gripið mjúklega í stýrið og aðstoðað þig við að halda bílnum og farþegunum öruggum á sínum stað.

* Akstursaðstoðarkerfi koma ekki í stað athygli og dómgreindar ökumanns. Stýrisaðstoð er virk þegar ökutækið er á milli 60 og 140 km/klst.
** Ökutæki, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk sem stefnir í sömu átt og bíllinn greinast á vissum hraða og við vissar aðstæður. Skynjarakerfi krefjast þess að hlutir séu upplýstir og að fram- og afturljós bílsins séu kveikt eftir að dimma tekur. Ökumaðurinn einn ber ábyrgð á öryggi við akstur öllum stundum.
*** Stuðningsaðgerðir koma ekki í staðinn fyrir athygli og dómgreind ökumanns. Virkni umferðarskynjara kann að vera takmörkuð við vissar aðstæður. Hemlaaðstoð er aðeins virk á hægum hraða.

Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.

Google, Google Play og Google Maperu vörumerki Google LLC.