Helsti búnaður

Kynntu þér hvernig tengigeta, þægindi og öryggisbúnaður gera XC90 Recharge einstakan í sinni röð.

Innbyggt Google

Besta leiðsögn í flokki sambærilegra bíla

Google Maps er innbyggt í XC90 Recharge og þú færð rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gera þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.

Google hjálpari

Notaðu handfrjálsa stjórnun til að spjalla við Google í XC90 Recharge. Þú getur fengið leiðarlýsingu, notið afþreyingar og verið í sambandi við vini, fjölskyldu og vinnufélaga – þú segir einfaldlega „Ok Google“ til að hefjast handa.

Google Play

Vertu í tengslum við stafræna lífið þitt. Með Google Play í XC90 Recharge bílnum þínum getur þú notið forrita og þjónustu sem gera hverja ferð skemmtilegri og þægilegri.

Besta leiðsögn í flokki sambærilegra bíla

Google Maps er innbyggt í XC90 Recharge og þú færð rauntímaupplýsingar um umferð og sjálfvirkar breytingar á leiðsögn sem gera þér kleift að ná áreynslulaust á áfangastað.

Google þjónustan er virkjuð með stafræna pakkanum, sem er innifalinn til fjögurra ára. Að þessum tíma loknum gilda nýir skilmálar og gjöld ef þú kýst að endurnýja.

Öll gögn innifalin

Innifalið er ótakmarkað gagnamagn og er stafræni þjónustupakkinn okkar þægileg leið til að samræma líf þitt, lífið með XC90 Recharge og stafræna lífið.

Innbyggt Google

Þú færð uppáhaldsforritin þín, eins og Google Assistant, Google Map og fleira á Google Play, beint í bílinn til að tryggja þér góða, einstaklingsmiðaða og óaðfinnanlega akstursupplifun.

Volvo Cars appið

Fínstilltu þægindin og fáðu meira út úr Volvo-bílnum þínum. Stafræni þjónustupakkinn okkar býður m.a. upp á fjarþjónustu í gegnum Volvo Cars appið.

XC90 Recharge fylgir fjögurra ára áskrift að stafrænum þjónustupakka. Ef þú kýst að endurnýja að þessum tíma loknum þá gilda nýir skilmálar og gjöld.

Þægindi og tækni

Háþróaða loftræstikerfið í Volvo XC90 Recharge hjálpar þér og farþegum þínum að njóta betri og heilbrigðari loftgæða.Hreinna loft í farþegarýminu

Háþróað lofthreinsitækið í glænýju loftgæðakerfi okkar síar burt allt að 95% allra skaðlegra agna sem berast inn í farþegarýmið. Þú og farþegar þínir getið notið betri og heilsusamlegri loftgæða, óháð skilyrðum utandyra. Jafnvel er hægt að vakta svifryks- og frjókornastöðuna fyrir utan bílinn.

Hjálparhönd

Háþróuð aksturaðstoðartækni okkar býður upp á afslappaðri akstur. Hún getur aðstoðað þig við að halda öruggri fjarlægð frá ökutæki fyrir framan með því að stilla hraða bílsins um leið og hún heldur honum á miðri akreininni með smávægilegum sjálfvirkum leiðréttingum á akstursstefnu. Tæknin gagnast einnig í þungri og hægri umferð þar sem oft þarf að stoppa og getur auk þess látið þig vita ef umferðin fer af stað aftur án þess að þú takir eftir því.

Tæknileg smámynd af loftfjöðrun og dempurum á Volvo XC90 Recharge.Kraftmikill og fágaður akstur

Virkur undirvagn bílsins með loftfjöðrun stillir stöðugt aksturshæð og aðlagar demparana til að auka stöðugleika og tryggja kraftmikinn og fágaðan akstur með hámarksorkunýtni á miklum hraða. Og þegar aðstæður krefjast þess geturðu valið torfærustillinguna til að auka hæð frá jörðu.

Innanrými Volvo, sjónlínuskjár varpar upplýsingum um aksturshraða og leiðsögn á framrúðuna.Haltu einbeitingu

Sjónlínuskjár gerir þér kleift að fylgjast með hraðanum, fara eftir nákvæmri leiðsögn, svara símtölum og fleira. Allt þetta án þess að líta af veginum. Birtustig sjónlínuskjásins lagar sig sjálfkrafa að birtuskilyrðum og þú getur stillt kerfið að þínum eigin óskum.

Háþróaða loftræstikerfið í Volvo XC90 Recharge hjálpar þér og farþegum þínum að njóta betri og heilbrigðari loftgæða.
Tæknileg smámynd af loftfjöðrun og dempurum á Volvo XC90 Recharge.
Innanrými Volvo, sjónlínuskjár varpar upplýsingum um aksturshraða og leiðsögn á framrúðuna.
Hreinna loft í farþegarýminu

Háþróað lofthreinsitækið í glænýju loftgæðakerfi okkar síar burt allt að 95% allra skaðlegra agna sem berast inn í farþegarýmið. Þú og farþegar þínir getið notið betri og heilsusamlegri loftgæða, óháð skilyrðum utandyra. Jafnvel er hægt að vakta svifryks- og frjókornastöðuna fyrir utan bílinn.

Spennandi hljómgæði

Hannað fyrir fólk sem leitast eftir framúrskarandi hljómgæðum. Þetta 1400 W hágæðahljóðkerfi er í boði sem aukabúnaður og gerir tónlistina tærari og raunverulegri, fínstillir smáatriði og upplausn og gerir þér kleift að heyra lagið alveg eins og listamaðurinn vildi að það hljómaði.

Glæddu tónlistina þína lífi

19 hátalarar og nýstárlegur bassahátalari sem eru lagaðir nákvæmlega að byggingu farþegarýmisins í Volvo skila glæsilegum surround-hljómi, sama hvar þú situr. Heildstæð tónlistarupplifun sem þú nýtur í botn.

Veldu þína stillingu

Einstök „Room Transformation“-tækni endurskapar hljóðvist tiltekins herbergis. Þú velur milli fjögurra mismunandi stillinga, „Studio“, „Individual Stage“, „Concert Hall“ og „Jazz Club“.

Öryggisaðstoð

Minna álag í mikilli umferð

BLIS-kerfið okkar fyrir blindsvæði aðstoðar þegar skipt er á milli akreina. Ef hætta er á árekstri við önnur ökutæki á aðliggjandi akrein getur BLIS-kerfið gripið mjúklega í stýrið og aðstoðað þig við að halda bílnum og farþegunum öruggum á sínum stað.

Greinir og leiðréttir skrið

Ef bílinn byrjar að reka yfir miðlínuna skapast hætta á árekstri við bíl sem kemur á móti. Bíllinn getur greint þetta og leiðrétt og komið þér aftur á réttan kjöl á veginum.*

Komið í veg fyrir árekstra

Hugvitssamleg öryggisaðstoð gerir þér kleift að greina og forðast ákeyrslu á önnur ökutæki, gangandi vegfarendur, hjólreiðafólk og stór dýr. Þessu er náð með því að vara fyrst ökumanninn við og beita því næst hemlum ef ökumaðurinn bregst ekki við.**

360° yfirsýn yfir bílastæði

360° yfirsýn fjögurra myndavéla og hliðarskynjarar þessa kerfis auka yfirsýn yfir hluti til hliðar við bílinn og auðvelda þér að leggja bílnum, óháð því hversu þröngt stæðið er.

Bakkað af öryggi

Umferðarskynjari með sjálfvirkri hemlun aðstoðar ökumanninn þegar bakkað er við takmarkað útsýni. Kerfið getur greint ökutæki sem nálgast bílinn frá hliðum og beitt sjálfvirkri hemlun ef með þarf.***

Aðstoð þvert á aðkomandi umferð

Öryggisaðstoðartæknin okkar getur aðstoðað þegar beygja þarf þvert á aðkomandi umferð með sjálfvirkri hemlun ef hætta er á árekstri.

Minna álag í mikilli umferð

BLIS-kerfið okkar fyrir blindsvæði aðstoðar þegar skipt er á milli akreina. Ef hætta er á árekstri við önnur ökutæki á aðliggjandi akrein getur BLIS-kerfið gripið mjúklega í stýrið og aðstoðað þig við að halda bílnum og farþegunum öruggum á sínum stað.

* Akstursaðstoðarkerfi koma ekki í stað athygli og dómgreindar ökumanns. Stýrisaðstoð er virk þegar ökutækið er á milli 60 og 140 km/klst.
** Ökutæki, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk sem stefnir í sömu átt og bíllinn greinast á vissum hraða og við vissar aðstæður. Skynjarakerfi krefjast þess að hlutir séu upplýstir og að fram- og afturljós bílsins séu kveikt eftir að dimma tekur. Ökumaðurinn einn ber ábyrgð á öryggi við akstur öllum stundum.
*** Stuðningsaðgerðir koma ekki í staðinn fyrir athygli og dómgreind ökumanns. Virkni umferðarskynjara kann að vera takmörkuð við vissar aðstæður. Hemlaaðstoð er aðeins virk á hægum hraða.

Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.

Google, Google Play og Google Maperu vörumerki Google LLC.