Helsti búnaður

Kynntu þér hvernig tengigeta, þægindi og öryggisbúnaður gera XC90 jeppa einstakan í sinni röð.

Innbyggt frá Google

Öll gögn innifalin

Öll gögn eru innifalin og stafræni þjónustupakkinn okkar er þægileg leið til að samræma líf þitt, lífið með XC90 og stafræna lífið.

Innbyggt frá Google

Þú færð uppáhaldsforritin þín, eins og Google Assistant, Google Map og fleira á Google Play, beint í bílinn til að tryggja þér góða, einstaklingsmiðaða og óaðfinnanlega akstursupplifun.

Volvo Cars appið

Fínstilltu þægindin og fáðu meira út úr Volvo-bílnum þínum. Stafræni þjónustupakkinn okkar býður m.a. upp á fjarþjónustu í gegnum Volvo Cars appið.

Stafrænn þjónustupakki

XC90 fylgir fjögurra ára áskrift að stafræna þjónustupakkanum. Að því tímabili liðnu taka nýir skilmálar við.

Þægindi og tækni

Spennandi hljómgæði

Hannað fyrir þá sem leitast eftir framúrskarandi hljómgæðum. Þetta 1.400 W hágæðahljóðkerfi er í boði sem aukabúnaður og gerir tónlistina tærari og raunverulegri, fínstillir smáatriði og upplausn og gerir þér kleift að heyra lagið alveg eins og listamaðurinn vildi að það hljómaði.

Glæddu tónlistina þína lífi

19 hátalarar og nýstárlegur bassahátalari sem eru lagaðir nákvæmlega að byggingu farþegarýmisins í Volvo skila glæsilegum surround-hljómi, sama hvar þú situr. Heildstæð tónlistarupplifun sem þú nýtur í botn.

Veldu þína stillingu

Einstök „Room Transformation“-tækni endurskapar hljóðvist tiltekins herbergis. Þú velur milli fjögurra mismunandi stillinga, „Studio“, „Individual Stage“, „Concert Hall“ og „Jazz Club“.

Bowers & Wilkins-hljóðkerfi

Hátalarar frá Bowers & Wilkins í innanrými Volvo XC90.

Öryggisaðstoð []

* Akstursaðstoðarkerfi koma ekki í stað athygli og dómgreindar ökumanns. Stýrisaðstoð er virk þegar ökutækið er á milli 60 og 140 km/klst.
** Ökutæki, gangandi vegfarendur og hjólreiðafólk sem stefnir í sömu átt og bíllinn greinast á vissum hraða og við vissar aðstæður. Skynjarakerfi krefjast þess að hlutir séu upplýstir og að fram- og afturljós bílsins séu kveikt eftir að dimma tekur. Ökumaðurinn einn ber ábyrgð á öryggi við akstur öllum stundum.
*** Stuðningsaðgerðir koma ekki í staðinn fyrir athygli og dómgreind ökumanns. Virkni umferðarskynjara kann að vera takmörkuð við vissar aðstæður. Hemlaaðstoð er aðeins virk á hægum hraða.

Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.

Google, Google Play og Google Map eru vörumerki Google LLC.