Skoðaðu XC40 Recharge rafmagnsjeppann betur að innan.
Ekkert leður er notað í innra rými XC40 Recharge-rafbíla. Með sérsniðnu áklæði úr ullarblöndu fæst fágað, skandinavískt yfirbragð – sem er jafnþægilegt hvort sem heitt eða kalt er í veðri.
XC40 Recharge fæst með áklæðum sem eru að hluta úr endurunnu efni – og býður þannig upp á sjálfbærari valkost auk þess sem þau kallast fallega á við aðra hönnunareiginleika innra rýmisins.
Hönnun innanrýmisins sækir innblástur til landslagsins og miðar að því að skapa náttúrulega, róandi birtu og nútímalegt andrúmsloft með hálfgagnsæjum, baklýstum skreytingum.
Innra rýmið býður upp á handhægar geymslulausnir fyrir vatnsflöskur, íþróttatöskur, síma, fartölvur, skyndibita og margt fleira.
Með XC40 Recharge færðu stærra, betra og fjölhæfara geymslurými en búast mætti við í svo fyrirferðarlitlum bíl án þess að dregið sé úr kröfum um þægindi eða öryggi. Það er rými fyrir farangur undir gólfinu og að framan, auk þess sem það er stórt geymslurými að aftan sem auðvelt er að hlaða í, án þröskulds og með sléttum gólffleti þegar aftursætin eru felld niður.
XC40 Recharge sækir innblástur í skandinavíska fagurfræði þar sem saman fara virkni, einfaldleiki og handverk. Þægilegt, róandi og haganlega hannað farþegarýmið er með fáguðum sætum í hárri stöðu og viðbragðsgóðu stýri sem stuðlar að betri stjórn og meiri þægindum við akstur.
Hægt er að opna og halla þakglugganum og skapa rúmgott andrúmsloft sem lyftir öllum ferðum á hærra stig. Rafknúið sólskyggni dempar birtuna á sólríkum dögum og skyggt lagskipt gler eykur bæði þægindi og öryggi.
Hreint Rafmagn
Uppgötvaðu fyrsta crossover rafbílinn okkar, með leðurfríu innanrými og innbyggðu Google.
Hreint Rafmagn
Uppgötvaðu fyrsta crossover rafbílinn okkar, með leðurfríu innanrými og innbyggðu Google.
Búnaður sem er sýndur er hugsanlega ekki staðalbúnaður eða í boði með öllum útfærslu- eða aflrásavalkostum.
Google, Google Play og Google Maperu vörumerki Google LLC.